Óskað eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna leikskólaráðs 2010
08.04.2010
Upplestur á frétt 
Auglýst hefur verið eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna 2010 og er skilafrestur til 24. apríl. Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Höfða í maí. Sjá eyðublað fyrir tilnefningu.
Stofnað var til hvatningarverðlauna leikskólaráðs haustið 2006 og verða því þau afhent í fjórða sinn á þessu ári.
Í fyrra bárust 60 tilnefningar til hvatningarverðlauna vegna 13 leikskólaverkefna, en markmið verðlaunanna er að veita starfsfólki leikskólanna í Reykjavík hvatningu í starfi og vekja athygli á því gróskumikla faglega starfi sem það innir af hendi í menntun yngstu borgarbúanna.
Sjá eldri fréttir um hvatningarverðlaun og verðlaunahafa.