Eyjapeyji segir sögur í Dvergasteini
22.06.2010
Upplestur á frétt 
Það hljóp á snærið hjá börnum og starfsfólki í Dvergasteini á dögunum þegar Birgir Vigfússon, afi eins barnanna kom í heimsókn og sagði sögur frá því þegar hann var lítill eyjapeyji í Vestmannaeyjum. Afi Biggi sagði þeim frá spröngunni, fuglunum, eldgosinu og eyjalífinu þegar hann var lítill, eða "í gamla daga" eins og börnin leiðréttu hann.
Börnin í Dvergasteini hafa verið að vinna með þjóðsöguna um Herjólf og Vilborgu sem gerist einmitt í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum.
Þegar sögustund lauk bauð afinn góði úr Vestmannaeyjum ömmunni Svandísi Jónsdóttur í dans og dönsuðu þau undir laginu "Ég veit þú kemur í kvöld til mín" með Ellý Vilhjálms. Bæði börn og fullorðnir skemmtu sér konunglega.