Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Skógarleiksvæði opnað í Reynisholti

28.06.2010

Upplestur á frétt 

Reynislundur, glæsilegt útileiksvæði sem foreldrar og sjálfboðaliðar hafa gert við leikskólann Reynisholt í Grafarholti, var opnað við hátíðlega athöfn föstudaginn 25. júní. Þar er m.a. listalega hlaðinn jógalundur, sjóræningjaskip, ræktunarsvæði og margvísleg klifurtæki.

Skógarleiksvæðið er mikil og góð viðbót við útistarfið í Reynisholti, en líka fyrir grenndarsamfélagið allt, því Reynislundur var gerður í almenningi sem fyrir var í jaðri leikskólalóðarinnar. Guðmundur Hrafn Arngrímsson, landslagsarkitekt og og formaður íbúasamtakanna í Grafarholti, á heiðurinn af hönnun skógarleiksvæðisins. Hann á einnig tvö börn í leikskólanum Reynisholti og eitt í Sæmundarskóla og hefur líka hannað og unnið við útikennslusvæði fyrir grunnskólabörnin við Reynisvatn.

Guðmundur Hrafn hefur síðustu tvær vikur unnið hörðum höndum að því að fullgera Reynislund ásamt foreldrum og sex sjálfboðaliðum frá samtökunum SEEDS. Þeir komu alla leið frá Ítalíu, Kóreu og Bandaríkjunum til að vinna að þessu verkefni og hefur hópurinn meðal annars sótt efnivið í skógarleikföngin, plantað nytjaplöntum og trjám, hlaðið upp torf, smíðað leiktæki og klifurgrindur, girt og lagt gangstíga. 

Guðmundur Hrafn segir að þetta hafi verið afar ánægjulegt verkefni sem margir foreldrar hafi komið að. Honum hafi fundist vanta örvun fyrir börnin í hverfinu, öðru vísi leiksvæði þar sem þau læra að bera virðingu fyrir náttúrunni og kynnast  hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar.

Augljóst var við opnun Reynislundar að börnin voru himinlifandi með leiksvæðið sem svo sannarlega er mikill ævintýraheimur.