Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Nýjar reglur um framlag borgarinnar til dagforeldra

01.07.2010

Upplestur á frétt 

Leikskólaráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt nýjar reglur um framlag vegna barna hjá dagforeldrum og taka þær gildi 1. okt. nk. Með þeim er leitast við að skapa meira samræmi í framlögum borgarinnar vegna daggæslu barna, hvort heldur er hjá dagforeldri eða í leikskóla, til hagsbóta fyrir dagforeldra og foreldra.

Dagforeldrum er nú gert að undirrita yfirlýsingu með skuldbindingu um að hlíta nýju reglunum og jafnframt er kveðið skýrar á um upplýsingaskyldu þeirra til þjónustumiðstöðva borgarinnar. Að öðru leyti eru reglurnar færðar til samræmis við reglur Leikskólasviðs um leikskólaþjónustu sem gilda um leikskóla borgarinnar og sjálfstætt starfandi leikskóla. Um þessar mundir er verið að leggja lokahönd á nýtt upplýsingakerfi fyrir daggæsluþjónustu Reykjavíkurborgar. Gert er ráð fyrir að dagforeldrar, sem eru sjálfstætt starfandi verktakar, fái aðgang að kerfinu sem halda mun utan um allar upplýsingar er snúa að dagvistun reykvískra barna.

Frekari upplýsingar um breyttar reglur um framlög borgarinnar til dagforeldra veitir Sigríður Marteinsdóttir, verkefnastjóri daggæslu hjá Leikskólasviði Reykjavíkurborgar, í s. 411 7025.

Sjá nýju reglurnar