Foldarborgarbörn fara á fjall
02.07.2010
Upplestur á frétt 
Elstu börnin á Foldaborg gengu á Úlfarsfell í sumarsólinni og fengu fræðslu um náttúru og helstu kennileiti í umhverfinu.
Börnin hafa á undanförnum vikum farið í margar vettvangsferðir vítt og breytt um borgina og kynnt sér bæði menningu og mannlíf.
Þann 23. júní var farið í fjallgöngu á Úlfarsfellið og teknar myndir, m.a. yfirlitsmyndir yfir borgina og sundin, sem geyma má ýmist á vegg eða í huga sér.