Fjölmennt á kynningafundum um sameiningartillögur
19.03.2011
Upplestur á frétt 
Fjölmenni var á opnum fundum sem borgaryfirvöld efndu til með foreldrum leik- og grunnskólanemenda í Réttarholtsskóla og í Hlíðaskóla í dag. Í Réttarholtsskóla var fundað með foreldrum leik- og grunnskólabarna í Laugardal, Háaleiti og Bústaðahverfi og í Hlíðaskóla með foreldrum barna í Vesturbæ og Miðborg. Rætt var um tillögur að sameiningum til að ná fram hagræðingu í rekstri borgarinnar og var Jón Gnarr borgarstjóri með framsögu svo og Oddný Sturludóttir formaður menntaráðs og starfshóps sem vann að tillögum um sameiningar skóla í hagræðingarskyni.Foreldrar bæði leik- og grunnskólabarna í viðkomandi hverfum tóku til máls að framsögum loknum og sögðu skoðanir sínar á þeim tillögum sem snerta hverfin sem um ræðir. Foreldrar voru margir hverjir vel undirbúnir og inntu svara á spurningum sem eru þeim ofarlega í huga og sátu fulltrúar borgarinnar fyrir svörum. Tillögur um sameiningar í leik- og grunnskólum Reykjavíkurborgar eru til umsagnar hjá foreldrum og fleiri aðilum til 25. mars nk. Skoða má ýtarlegar upplýsingar um tillögurnar og fleira á vefsíðum um skóla og frístund.
Ályktun sem samþykkt var í Réttarholtsskóla
Ályktun sem samþykkt var í Hlíðaskóla.