Evróvision í Jörfa
21.03.2011
Upplestur á frétt 
Evróvisíonstjarnan, Benedikt Brynleifsson tónlistarmaður, mætti með gítarinn í söngstund í Jörfa á dögunum og tók vinningslagið Aftur heim með börnunum. Benedikt, sem á son í Jörfa, og tók að sér að stjórna þessari frábæru samverustund, en sameiginlegar söngstundir eru í miðrými leikskólans alla föstudaga.
Þó Evróvisíonlagið sé glænýtt vafðist það ekki fyrir leikskólabörnunum að syngja með og tóku þau hressilega undir í laginu. Þau sungu líka Mér er kalt á tánum, Krummi krunkar úti og Nú er úti norðanvindur.