Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Í gegnum holt og hæðir

22.03.2011

Upplestur á frétt 

Elstu börnin í leikskólanum Sjónarhóli hafa í vetur unnið með ævintýrið Í gegnum holt og hæðir eftir Herdísi Egilsdóttur kennara og rithöfund. Þau urðu því harla glöð þegar hún heimsótti þau á dögunum og sagði þeim meira úr ævintýraheimum. Herdís svaraði ýmsum spurningum sem brunnu á börnunum eftir lestur bókarinnar. Einnig sýndu börnin henni stolt afrakstur af vinnu sinni eftir veturinn, en þau hafa rætt fram og aftur um bókina, búið til loðtöflusögu, þrívíddarmyndir og unnið með jarðleir.

Starfsfólk og börnin á Sjónarhóli voru afar þakklát Herdísi fyrir að gefa sér tíma til að heimsækja þau.