Undirskriftir afhentar borgarstjóra
24.03.2011
Upplestur á frétt 
Forsvarsmenn vefsíðunnar born.is afhentu Jóni Gnarr, borgarstjóra, undirskriftir fyrir utan Ráðhús Reykjavíkur síðdegis í dag. Undirskriftirnar eru á tólfta þúsund og er skorað á Reykjavíkurborg að falla frá fyrirhuguðum tillögum um sameiningar- og breytingaráformum í leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum borgarinnar. Hagræðingaráformum er ekki mótmælt en þau þurfi að vinna út frá faglegum forsendum og í nánu samstarfi við foreldra, starfsfólk og stjórnendur viðkomandi stofnana. Borgarstjóri þakkaði hópnum fyrir og sagði að umsagnarfrestur vegna fyrirliggjandi tillagna rynni út á morgun og farið yrði vandlega yfir allar umsagnir sem bærust borginni.
Sjá allar umsagnir vegna tillagna um sameiningu skóla og breytingar á skólastarfi