Fjör með foreldrum í Foldakoti
25.03.2011
Upplestur á frétt 
Kátt var í Foldakoti á foreldrardegi í morgun og brugðu börn, kennarar og foreldrar á leik. Dagurinn hófst á því að nemendur buðu foreldrum sínum upp á ristað brauð og heimalagað marmelaðið sem Mattý matráður bjó til af mikilli snilld.
Að loknum morgunverði hélt öll hersingin inn á Mánasal á Vinafund sem á sér ellefu ára samfelda sögu í Foldakoti. Nemendur stigu á stokk með söng og gamanmál. Dansgleðin tók svo völdin þegar valsinn var stigin en hann hefur verið fastur liður á vinafundum í vetur.
Allir voru með, ungir sem gamlir, og þótti upplifun að sjá yngstu börnin takast í hendur og svífa inn í hina angurværu valavöggu.