Tobbi túba á sinfóníutónleikum leikskólabarna
29.03.2011
Upplestur á frétt 
Ævintýrið um Tobba túbu hljómaði í tónum og tali á sinfóníutónleikum leikskólanna 29. mars. Greinilegt var að börnin skemmtu sér konunglega og sátu þau bergnumin undir frásögn Halldóru Geirharðsdóttur sem leiddi þau inn í ævintýrið í hlutverki Barböru trúðs.
Tobbi túba er eftir Georg Kleinsinger og hefur verkið notið mikilla vinsælda ungra tónleikagesta. Einleikari á túbu var Tim Buzbee og hljómsveitarstjóri Guðni Fransson.
Þessir árvissu sinfóníutónleikar eru fyrir elstu börnin í leikskólum borgarinnar. Fyrir þau eru haldnir þrennir tónleikar dagana 29. og 30. mars og fá rúmlega 1.600 börn og starfsfólk leikskólanna að njóta tónlistar og ævintýra.