Segir margt af einum - námskeiðsdagur dagforeldra
29.03.2011
Upplestur á frétt 
Námskeiðsdagur dagforeldra var haldinn í fimmta skipti 25. mars sl. og þótti vel heppnaður. 120 dagforeldrar í borginni sóttu námskeiðið þar sem fluttir voru fyrirlestrar um samskipti ungra barna, gildi útivistar og fleira.
Fyrirlesarar voru Hrönn Pálmadóttir lektor sem kynnti rannsókn um leik og samskipti ungra barna, Helena Óladóttir frá Náttúruskólanum sem fjallaði um útivist og útinám ungra barna og Líney Úlfarsdóttir sálfræðingur sem flutti erindið "Segir margt af einum". Í lokin tók Svavar Knútur nokkur lög við góðar undirtektir.