Skógarleiðangur í Laugardal
30.03.2011
Upplestur á frétt 
Hvar finnum við tré? Hvað heyrist í þeim? Hvernig lykt er af þeim? Hvers vegna stækka þau? Hvað verða þau eiginlega gömul? Þetta eru spurningar sem svör fást við í könnunarleiðangri leikskólabarna og kennara um Grasagarð Reykjavíkur. Tilkynning um þessa fræðslu var nýlega send í leikskólana og reyndist áhuginn svo mikill að mun færri komust að en óskuðu.
Grasagarðurinn og Náttúruskóli Reykjavíkur munu í tilefni af alþjóðlegu ári skóga 2011 og Grænum apríl bjóða elstu börnum leikskólanna í Reykjavík að heimsækja garðinn og kynnast forvitnilegum hliðum trjánna í skóginum vikuna 4. – 8. apríl. Fullbókað er þessa leiðsögn.
„En við erum með annað verkefni í þessum dúr, því bráðlega verður opnað fyrir pantanir á sérútbúnum fræðslubakpoka fyrir leikskólahópa,“ segir Hildur Arna Gunnarsdóttir fræðslustjóri Grasagarðsins. Kennari barnanna ber þá pokann og fer með börnin í leiðangur um garðinn eftir leiðbeiningum.
Margt nytsamlegt og skemmtilegt leynist í bokanum: verkefni sem styrkja bönd barna og blóma, leiðbeiningar fyrir umhverfisleiki, stækkunargler og málbönd svo dæmi séu tekin. Fræðslubakpokarnir verða tilbúnir til útláns í Grasagarðinum án endurgjalds upp úr miðjum apríl.
Tengill:
Grasagarður Reykjavíkur
Grænn apríl
Alþjóðlegt ár skóga
Náttúruskóli Reykjavíkur