Fjölmargar umsagnir um tillögur um sameiningu skóla
05.04.2011
Upplestur á frétt 
Umsagnarfrestur vegna tillagna um sameiningu skóla og breytingar á skólastarfi í Reykjavík rann út 25. mars. Fjölmargar umsagnir bárust frá skólaráðum, foreldraráðum, foreldrasamtökum, ungmennaráðum, hverfisráðum og sérfræðingum.
Borgarráð óskaði eftir því á fundi sínum 3. mars að leitað yrði eftir umsögnunum um tillögur starfshóps sem falið var að greina þau tækifæri sem kunnu að vera til staðar til að endurskipuleggja og/eða sameina skóla- og frístundaheimili með hagfræðingu og faglegan ávinning í huga. Tillögur starfshópsins voru 23 og snúa þær að 30 leikskólum, 10 grunnskólum og öllum frístundaheimilum borgarinnar.
Leitað var eftir umsögnum allra skólaráða í borginni, foreldraráða þeirra leikskóla sem tillögurnar varða, foreldrasamtaka, ungmennaráða, hverfisráða, sérfræðinga hjá HÍ, stéttarfélaga og ýmissa stofnana.
Sjá allar umsagnir