Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Fjölmargar umsagnir um tillögur um sameiningu skóla

05.04.2011

Upplestur á frétt 

Umsagnarfrestur vegna tillagna um sameiningu skóla og breytingar á skólastarfi í Reykjavík rann út 25. mars. Fjölmargar umsagnir bárust frá skólaráðum, foreldraráðum, foreldrasamtökum, ungmennaráðum,  hverfisráðum og sérfræðingum. 

Borgarráð óskaði eftir því á fundi sínum 3. mars að leitað yrði eftir umsögnunum um tillögur starfshóps sem falið var að greina þau tækifæri sem kunnu að vera til staðar til að endurskipuleggja og/eða sameina skóla- og frístundaheimili með hagfræðingu og faglegan ávinning í huga. Tillögur starfshópsins voru 23 og snúa þær að 30 leikskólum, 10 grunnskólum og öllum frístundaheimilum borgarinnar.

Leitað var eftir umsögnum allra skólaráða í borginni, foreldraráða þeirra leikskóla sem tillögurnar varða, foreldrasamtaka, ungmennaráða, hverfisráða, sérfræðinga hjá HÍ, stéttarfélaga og ýmissa stofnana.

Sjá allar umsagnir