Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Leikskólabörn læra um náttúruna í grænum apríl

06.04.2011

Upplestur á frétt 

Reykjavíkurborg leggur áherslu á grænu málin í aprílmánuði með því að taka þátt í Evrópskum orkudögum og Grænum apríl. Leikskólabörn voru í Laugardalnum í morgun, 6. apríl, í náttúrukennslu og á morgun verður málþing um græn ferðalög.

Börn frá leikskólunum Blásölum og Drafnarborg lærðu um trén þegar þau fóru í könnunarleiðangur  í Laugardalnum í morgun. Hildur Arna Gunnarsdóttir fræðslustjóri í Grasagarðinum og Helena Óladóttir hjá Náttúruskóla Reykjavíkur leiðbeina börnunum og þau læra að nema náttúruna með því að snerta, skoða, lykta, finna og hlusta. Einnig fræðast þau um undur trjánna.

Ómögulegt er að spá fyrir um viðbrögð barna nema hvað að þau verða glöð í náttúruskoðun. Eitt þeirra fann náttúrulega holu sem kom á óvart, öðru fannst gaman að tína köngla og það þriðja skaust inn á milli runna. Hildur Arna segir það einkenna börnin sem koma í heimsókn í Grasagarðinn að þau verði heilluð af náttúrunni. Hún segir það bæði gefandi og lærdómsríkt að fá þau í heimsókn. Það fylltist umsvifalaust í þessar leiðangursferðir í Laugardalnum enda leikskólar duglegir að nýta sér það sem gott þykir.

Markmið Evrópskra orkudaga, sem fram fara 11.-15. apríl, er að efla hagkvæma orkunýtingu og styðja nýtingu vistvænnar orku.

Tengill:

Grænn apríl: ferðalög framtíðar

Dagskrá fyrir Grænan apríl í Reykjavík

Evrópskir orkudagar.

Grasagarður Reykjavíkur

Grænn apríl 

Alþjóðlegt ár skóga

Náttúruskóli Reykjavíkur