Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Útinám og náttúruleikir í Hálsakoti

22.06.2011

Upplestur á frétt 

Börn og starfsfólk í leikskólanum Hálsakoti fengu grenndarsvæði til afnota á afmælisdegi skólans 2. maí. Svæðið er afmarkað ósnortið land í Seljahverfi í Breiðholti. Það er í göngufæri frá leikskólanum og býður upp á fjölbreytt útinám og náttúruleiki.

Inga Dóra Jónsdóttir leikskólastjóri og Þórólfur Jónsson garðyrkjustjóri skrifuðu undir samning um samstarf og nýtingu svæðisins. Það verður vettvangur fyrir umhverfisfræðslu í nágrenni skólans þar sem tækifæri gefast á að njóta og upplifa náttúru og umhverfi.

Inga Dóra segir að nýting og umgengni verði á grundvelli sjálfbærrar þróunar. Hún segir að í vetur hafi starfsfólk leikskólans hlotið fræðslu og leiðsögn um aðferðafræði og möguleika í útinámi hjá Helenu Óladóttur verkefnisstjóra Náttúruskóla Reykjavíkur.

Umhverfismennt hefur lengi verið metnaðarmál í skólanum sem nú er skóli á grænni grein. Hálsakot fékk Grænfánann í fyrsta sinn á 20 ára afmæli skólans árið 2005, fyrstur leikskóla í Reykjavík, og stefnir á að fá fánann aftur í sumar.

Tengill

Ljósmynd í fullri stærð 1

Ljósmynd í fullri stærð 2

Leikskólinn Hálsakot