Laugaborg orðinn grænfánaskóli
20.06.2011
Upplestur á frétt 
Leikskólinn Laugaborg fagnaði á dögunum 45 ára afmæli. Á afmælisdaginn fékk leikskólinn líka sinn fyrsta Grænfána fyrir umhverfismennt og náttúruvernd. Í Laugaborg hefur verið unnið að ýmsum verkefnum í umhverfismennt síðustu fimmtán árin og var þessi viðburður því mikill gleðidagur í leikskólanum. Foreldrar barna í Laugaborgar gáfu skólanum fánastöng í afmælisgjöf og þar sómir Grænfáninn sér vel.