Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Afmælisveisla í Grænuborg

24.06.2011

Upplestur á frétt 

Haldið var upp á áttræðisafmæli leikskólans Grænuborgar með pompi og pragt föstudaginn 24. júní. Veislan var hápunktur afmælisviku þar sem ýmislegt hefur verið brallað. Einn dagurinn var t.d. helgaður hestinum og komu þá reiðmenn með nokkra hesta í heimsókn og leyfðu börnunum að fara á bak.

Barnaheimilið Grænaborg var upphaflega til húsa við Hringbraut þar sem áður stóð bær með sama nafni,  og var það í fyrstu einungis rekið yfir sumarmánuðina. Leikskólinn flutti í glæsilegt húsnæði upp á Skólavörðuholtið í apríl 1983.