Stórafmæli í Tjarnarborg
21.06.2011
Upplestur á frétt 
Haldið var upp á 70 ára afmæli leikskólans Tjarnarborgar föstudaginn 24. júní. Lífleg karnivalssteming réði ríkjum á afmælishátíðinni og tóku börn og fullorðnir virkan þátt í gleðinni.
Leikskólastarf hefur verið í Tjarnarborg frá árinu 1941 þegar Barnavinafélagið Sumargjöf keypti ráðherrabústaðinn og hóf að reka þar dagheimili, leikskóla og vöggustofu. Samhliða þeim rekstri starfaði í húsinu Uppeldisskóli Sumargjafar, sem síðar varð Fósturskóli Íslands og jafnframt gafst námsmeyjum skólans kostur á að leigja herbergi í risi hússins á því tímabili.
Í þessu glæsilega húsi, sem reist var af Hannesi Hafstein ráðherra eftir teikningu Rögnvaldar Ólafssonar, hefur ávallt ríkt góður andi fyrir leikskólastarf og ekki spillir glæsileg lóð og fuglalífið við Tjörnina.
Annar leikskóla sem kominn er á virðulegan aldur, Grænaborg, heldur líka upp á 80 ára afmæli föstudaginn 24. júni og verður sú hátíð lokahnykkur á afmælisviku með mörgum skemmtilegum uppákomum fyrir börn, foreldra og starfsfólk.