Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Börnin í Bakkaborg yrkja jörðina

23.06.2011

Upplestur á frétt 

Í dag kl. 14.00 ætla börnin í leikskólanum Bakkaborg að gróðursetja ýmsar nytjaplöntur á leikskólalóðinni, s.s. rifsberjarunna, sólberjarunna og stikkilsberjatré. Verkefnið er unnið í samstarfi við foreldrafélagið, garðyrkjudeild Reykjavíkur, Garðheima og samtökin Umhverfi og vellíðan. Foreldrar ætla að leggja börnum og starfsfólki lið, en Garðheimar, Umhverfi og vellíðan, foreldrar, afar og ömmur gáfu plönturnar sem gróður settar verða.

Auður Ottesen, formaður samtakanna Umhverfi og vellíðan, verður á staðnum en hún hefur gróðursett með börnum í öðrum leikskólum borgarinnar. Að lokinni gróðursetningu verður söngur og veitingar á skólalóðinni og vinnudegi lýkur með sýningu Sirkus Íslands til að fagna þeim áfanga sem náðst hefur í að fegra umhverfi Bakkaborgar og gera það nytsamlegra.