Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Styrkir veittir til þróunarverkefna í leikskólum

24.06.2011

Upplestur á frétt 

Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs, afhenti formlega styrki menntaráðs til leikskólastarfs við hátíðlega athöfn í ráðhúsinu í dag.

Samtals bárust 10 umsóknir um almenna styrkir Reykjavíkurborgar vegna leikskólamála og veittir voru 5 styrkir til stofnana og einstaklinga sem vinna með leikskólum að einstöku verkefnum. Má þar nefna RannUng (Rannsóknarstofa í menntunarfræðum ungra barna) Myndlistaskóla Reykjavíkur, Náttúruskólann, og sameiginlegt menningarverkefni fjögurra sviða Reykjavíkurborgar. Auk þess var veittur styrkur til einstaklinga til að kynna tónlist og leiklist í leikskólum.

Áherslan í styrkveitingum þróunarsjóðs þetta árið var á verkefni er tengjast læsi leikskólabarna á margs konar þætti í lífi og starfi, með áherslu á listir og skapandi starf í leikskóla, sjálfsmynd og félagsfærni, náttúruvernd og umhverfisvitund og kynjamótun í umhverfi barna. 8 umsóknir bárust og var úthlutað til 7 verkefna. Viðfangsefni í þróunarverkefnum að þessu sinni eru afar fjölbreytt, og má þar nefna jafnréttisverkefni, náttúruvernd, styrking sjálfsmyndar og lestur fyrir heyrnarlausra. Auk þess var veittur styrkur til þróunarverkefnis í sameiginlegum leik-, grunnskóla og frístund í Dalskóla.