Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Grænfáni dreginn að húni í Drafnarborg

30.06.2011

Upplestur á frétt 

Leikskólinn Drafnarborg hefur fengið sinn fyrsta Grænfána, en  í mörg ár hafa börn og starfsfólk unnið markvisst að umhverfis- og náttúruvernd. Haldið var upp á þessi tímamót föstudaginn 24. júní en þá var jafnframt efnt til sumarhátíðar í leikskólanum. Mikil gleði ríkti í barnahópnum sem fór í skrúðgöngu, grillaði og lék sér í góða veðrinu. Í tilefni dagsins sungu börnin líka umhverfissöng leikskólans; 

Við erum græn,
græn eins og grasið. 
Á Drafnarborg
við pössum umhverfið.

Við pössum blómin
og gætum að ormum.
Umhverfisvinir,
það erum við.