Sameinaðir leikskólar taka til starfa
05.07.2011
Upplestur á frétt 
Um mánaðamótin tóku til starfa 11 nýir sameinaðir leikskólar í Reykjavík undir stjórn nýrra leikskólastjóra. Nýráðnir stjórnendur hafa allir starfað áður sem leikskólastjórar hjá borginni, flestir til margra ára.
Nýir leikskólastjórnendur hafa undanfarnar tvær vikur setið námskeið á vegum Leikskólasviðs þar sem þeir hafa m.a. fengið fræðslu um breytingarstjórnun, sameiningu leikskóla, starfsmannastjórnun, stefnumótun og gerð fjárhagsáætlana. Mikil ánægja var með námskeiðið sem bæði skilaði fróðleik og treysti samstöðu hópsins.
Nýráðnir leikskólastjórar hafa á undanförnum dögum verið að ráða sér nýja aðstoðarleikskólastjóra, alls þrettán, og hófu þeir jafnframt stjórnunarstörf 1. júli. Að auki hafa á undanförnum vikum verið ráðnir fjórir leikskólastjórar og sjö aðstoðarleikskólastjórar við aðra leikskóla borgarinnar.
Nýir sameinaðir leikskólar:
- Dvergasteinn/Drafnarborg, leikskólastóri Elín Mjöll Jónasdóttir
- Lindarborg/Njálsborg/Barónsborg, leikskólastjóri Ragnheiður Halldórsdóttir
- Sólhlíð/Hlíðaborg, leikskólastjóri Elísabet Auðunsdóttir
- Sólbakki/Hamraborg, leikskólastjóri Arndís Bjarnadóttir
- Laugaborg/Lækjaborg, leikskólastjóri Helga Alexandersdóttir
- Sunnuborg/Holtaborg, leikskólastjóri Hrefna Sigurðardóttir
- Ásborg/Hlíðarendi, leikskólastjóri Ólöf Helga Pálmadóttir
- Skógaborg/Furuborg, leikskólastjóri Sigrún B. Ingþórsdóttir
- Arnarborg/Fálkaborg, leikskólastjóri Hildur Gísladóttir
- Hálsakot/Hálsaborg, leikskólastjóri Inga Dóra Jónsdóttir
- Foldakot/Foldaborg/Funaborg, leikskólastjóri Valgerður Anna Þórisdóttir
Í haust hafa verið innrituð mun fleiri leikskólabörn en undanfarin ár þar sem fæðingarárgangar 2009 og 2010 hafa aldrei verið stærri. Vegna barnasprengjunnar var fjármagn til leikskóla stórlega aukið í fjárhagsáætlun borgarinnar, eða um tæplega 300 milljónir á milli ára. Þá var ráðist i endurskipulagningu leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs, m.a. til að geta nýtt skólahúsnæði í borginni sem best.
Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs, segir að barnafjölskyldur í Reykjavík geti treyst því að staðið verði við þau markmið að tryggja öllum börnum sem verða tveggja ára á árinu leikskólapláss. „Starfsfólk í leikskólunum hefur unnið að því með okkur að tryggja þessum stóru árgöngum leikskólapláss, m.a. með því að stækka eldri leikskóla og gera ýmsar aðrar breytingar til að mæta þessari miklu barnafjölgun."
Sjá eldri frétt um fjölgun leikskólaplássa í borginni.
Sjá frekari upplýsingar um sameiningar stofnana í lærdómsumhverfi barna í Reykjavík