Borgarráð hefur samþykkt að ráða Ragnar Þorsteinsson sviðsstjóra nýs Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Starfið var auglýst laust til umsóknar þann 24. júní sl. og bárust 15 umsóknir.
Ragnar Þorsteinsson hefur starfað innan skólakerfisins frá 1973 m.a. sem kennari og skólastjóri í Breiðholtsskóla til ársins 2005, og hefur starfað í fjölmörgum starfshópum um skóla- og uppeldismál. Hann var framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Breiðholts til ársins 2007 en þá var hann ráðinn fræðslustjóri Reykjavíkurborgar og hefur gegnt því starfi síðastliðin 4 ár. Hann þekkir því málaflokkinn vel. Ragnar er með meistarapróf í stjórnun, með sérstaka áherslu á mannauðsstjórnun. Hann er kvæntur Þóru Vignisdóttur og eiga þau tvo uppkomna syni.
Ragnar mun leiða stefnumótun, uppbyggingu og rekstur skóla- og frístundasviðs borgarinnar. Hið nýja svið Skóla- og frístundamála fer m.a. með rekstur leikskóla, grunnskóla og verkefna sem nú heyra undir skrifstofu tómstundamála á Íþrótta- og tómstundasviði, s.s. frístundamiðstöðvar, félagsmiðstöðvar, frístundaheimili og annað tómstundastarf barna og unglinga.
Markmiðið með stofnun Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar er:
• Að tryggja heildstæða þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra.
• Að stuðla að sameiginlegri stefnumótun leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva í hverfum borgarinnar og auka þverfaglegt samstarf.
• Að efla yfirsýn yfir málaflokkinn og auka hagkvæmni í rekstri starfseininga.
Undirbúningur að stofnun Skóla- og frístundasviðs er hafinn og er miðað við að breytingarnar verði komnar að fullu til framkvæmda þann 31. desember 2011. Gert er ráð fyrir að Ragnar Þorsteinsson sviðsstjóri Skóla- og frístundasviðs taki til starfa 1. september nk.