Nýir leikskólastjórar í Hofi og í Laufskálum
10.08.2011
Upplestur á frétt 
Menntaráð hefur gengið frá ráðningum leikskólastjóra í Hofi og Laufskálum, en umsóknarfrestur um stöðurnar rann út 20. júlí. Ingveldur Hrönn Björnsdóttir var ráðin leikskólastjóri í Hofi og Hildur Lilja Jónsdóttir í Laufskálum.
Ingveldur Hrönn Björnsdóttir lauk námi í Fósturskóla Íslands árið 1977 og diplómanámi í stjórnun frá sama skóla 1988. Þá hefur hún lokið diplómanámi í uppeldis- og menntunarfræðum frá HÍ og er með meistaragráðu í sömu grein. Hún hefur áður starfað sem leikskólastjóri í leikskólunum Brákarborg og Dyngjuborg en frá árinu 1991 hefur hún verið verkefnastjóri og leikskólaráðgjafi hjá Reykjavíkurborg.
Fjórir sóttu um leikskólastjórastöðuna í Hofi.
Hildur Lilja Jónsdóttir útskrifaðist úr Fósturskóla Íslands árið 1995. Hún lauk diplómanámi í stjórnun frá University of Strathclyde í Skotlandi árið 1999 og hefur starfað sem deildarstjóri og leikskólastjóri í Reykjavík og Kópavogi, m.a. í Hlíðarborg. Þá hefur hún starfað sem ráðgjafi og kennara við innleiðingu nýja leikskólakerfisins Völu sem tekið var í notkun hjá Reykjavíkurborg á árinu.
Sex sóttu um leikskólastjórastöðuna í Laufskálum.