Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Jazz fyrir leikskólabörn

16.08.2011

Upplestur á frétt 

Laugardaginn 20. ágúst verður frumsýnt lítið leikrit eftir Hauk Gröndal fyrir börn á leikskólaaldri. Sprellikarlinn Orri Huginn Ágústsson heimsækir litla hljómsveit og leiðir börnin inn í töfraveröld tónlistarinnar. Þau fræðast um nokkur skemmtileg hljóðfæri og hvernig skapa má stemmningar með söng, dansi og hljóðfæraslætti.

Aðalleikendur eru Orri Huginn Ágústsson og hljómsveit sem skipuð er: Hauki Gröndal á saxófóna, klarínett og flautu, Pétri Grétarssyni á trommur og slagverk og Valdimar Kolbeini Sigurjónssyni á kontrabassa.

Sýningin fer fram í Norræna Húsinu og hefst kl. 13:00. Aðgangur er ókeypis meðan húsrúm leyfir.

Aukasýningar verða 27. ágúst kl. 13:00 og 3. september kl. 13:00

Verkefnið er sett upp í samvinnu við Reykjavík Jazzfestival og Norræna Húsið. Það er styrkt af Þróunarsjóði Leikskólasviðs Reykjavíkurborgar.