Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Starfsemi leikskólanna mun raskast verulega

19.08.2011

Upplestur á frétt 

Komi til verkfalls leikskólakennara á mánudag mun það hafa veruleg áhrif á starfsemi allra leikskóla Reykjavíkurborgar. Ljóst er að öllum deildum þar sem deildarstjóri er í Félagi leikskólakennara verður lokað. Aðrir starfsmenn leikskólanna verða að störfum á meðan verkfall stendur yfir.

Leikskólastjórar í hverjum skóla munu skipuleggja starfsemina og veita foreldrum upplýsingar um það hvort einhverjar deildir leikskólans verði opnar. Foreldrar greiða ekki leikskólagjöld fyrir þá daga sem barnið getur ekki sótt leikskóla komi til verkfalls.

Allt útlit er fyrir að ágreiningi samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og samninganefndar Félags leikskólakennara um hvernig haga beri leikskólastarfsemi í verkfallinu verði vísað til félagsdóms strax eftir helgi. Þegar niðurstaða dómsins liggur fyrir munu aðilar virða þá niðurstöðu.

Sjá bréf sem sent hefur verið foreldrum leikskólabarna í Reykjavík.
Sjá bréfið á ensku - english version.
Sjá bréfið á pólsku - polish version