Barnafjölgun mætt með viðbótarhúsnæði
26.08.2011
Upplestur á frétt 
Búið er að bæta við húsnæði leikskóla á nokkrum stöðum í borginni til að mæta mikilli barnafjölgun. Í nær öllum tilvikum hefur viðbótarhúsnæði verið flutt á staðinn og er verið að vinna við endanlegan frágang þess. Ganga þarf frá lögnum og laga húsin svo þar geti farið fram skipulagt leikskólastarf. Allt viðbótarhúsnæði er tekið út af byggingarfulltrúa og skoðað af heilbrigðiseftirliti áður en það er tekið í notkun eins og reglur kveða á um.
Unnið er að því að koma fyrir viðbótarhúsnæði við 10 leikskóla til að skapa 215 ný leikskólapláss. Í gærmorgun voru tvö samtengd hús flutt að leikskólanum Dvergasteini við Seljaveg og er það næstsíðasti flutningurinn á þessu hausti. Aðeins er eftir að færa hús að leikskólanum Grandaborg og verður það gert næstu daga. Aðrir leikskólar sem fá viðbótarhúsnæði eru Hof, Gullborg, Laugaborg, Sunnuborg, Rauðhóll, Geislabaugur og Dalskóli.
Í Framkvæmdasjá eru nánari upplýsingar um fjölda húsa, verkstöðu og áætluð verklok. Lokið verður við frágang á um helmingi húsanna fyrir lok ágúst, en önnur verk verða kláruð í september.
Skoða upplýsingasíðu í Framkvæmdasjá >>> Viðbótarhúsnæði fyrir leikskólana - haustið 2011