Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Dagforeldrar í borginni ekki fleiri í tæpan áratug

26.08.2011

Upplestur á frétt 

211 dagforeldrar eru nú að störfum í Reykjavík og hafa ekki verið fleiri síðan árið 2002. Engu að síður skortir dagforeldra í einu borgarhverfi, Vesturbæ, þar sem minnst nýliðun hefur verið. Þá eru biðlistar hjá dagforeldrum í Laugardal og Háaleiti, enda þótt dagforeldrum þar hafi fjölgað um átta. Í öllum öðrum hverfum eru laus pláss hjá dagforeldrum.

Borgaryfirvöld fóru í átak snemma árs til að fjölga dagforeldrum til að mæta stórum fæðingarárgöngum, s.s. með auglýsingum, réttindanámskeiði og kynningu. Þá hafa borgaryfirvöld látið leigt út laust húsnæði til dagforeldra sem starfa saman, s.s. gömul gæsluvallarhús.

Á árinu 2010 voru að jafnaði 180 dagforeldrar að störfum í borginni, en hefur nú fjölgað um þrjátíu.