Nýtt skóla- og frístundasvið tekur til starfa
06.09.2011
Upplestur á frétt 
Borgarstjórn ákvað á fundi sínum í dag að flýta stjórnkerfisbreytingum sem miða að því að efla heildstæða þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra.
Nýtt skóla- og frístundasvið mun taka til starfa frá og með 12. september næstkomandi og annast rekstur leikskóla, grunnskóla, frístundamiðstöðva, félagsmiðstöðva ogfrístundaheimila.Þá mun umsjón með daggæslu í heimahúsum, rekstur Námsflokka Reykjavíkur, skólasafnamiðstöðvar og skólahljómsveita heyra undir nýja sviðið. Það er stofnað á grunni Leikskólasviðs, Menntasviðs og tómstundaskrifstofu ÍTR sem verða lögð niður sem stjórnsýslueiningar.
Ragnar Þorsteinsson, nýráðinn sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs, tekur við ábyrgð á rekstri og verkefnum sem áður heyrðu undir þær stjórnsýslueiningar sem sameinaðar verða. Jafnframt munu fjárheimildir þeirra eininga flytjast yfir til hins nýja sviðs. Gert er ráð fyrir að endurskipulagning starfa og verkefna á nýju Skóla- og frístundasviði verði að mestu leyti lokið um áramót.
Í greinargerð með tillögu meirihluta borgarstjórnar segir m.a. að þar sem sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs hafi hafið störf, standi ekkert í vegi fyrir því að það taki strax til starfa, enda flestir starfsmenn sem breytingarnar varða áhugasamir um að vera frá fyrsta degi með í endurskipulagningu starfa og verkefna hins nýja sviðs .
Meginmarkmið þessara stjórnkerfisbreytinga eru að;
·tryggja heildstæða þjónustu við börn og barnafjölskyldur í borginni,
·stuðla að sameiginlegri stefnumótun fyrir fyrstu tvö skólastigin og frístundastarf í hverfum borgarinnar og auka þverfaglegt samstarf,
·efla yfirsýn yfir málaflokkinn og auka hagkvæmni í rekstri starfseininga.