Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Framkvæmdum flýtt við Norðlingaskóla

08.09.2011

Upplestur á frétt 

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu borgarstjóra um að flýta eftir fremsta megni framkvæmdum við Norðlingaskóla. Verður veitt 180 milljónum króna til viðbótar í framkvæmdir við skólann umfram það sem áætlað hafði verið til verksins á þessu ári.
Öll kennslurými, húsnæði stjórnunar og sameiginleg rými hafa þegar verið tekin í notkun, samtals um 5000 fermetrar. Áætlanir gera ráð fyrir að framkvæmdum við sérkennslurými, bókasafn og kennslueldhús ljúki á næstu 2-3 vikum. Íþróttahús og tónlistarskóli verða tekin í notkun um næstu áramót. Deild frá leikskólanum Rauðhóli hefur verið starfrækt í bráðabirgðahúsnæði á lóðinni en hún mun flytja í varanlegt húsnæði í skólanum í byrjun næsta árs.

Í tillögu borgarstjóra er lagt til að framkvæmdum verði flýtt þannig að allt skólahúsnæðið verði komið í notkun og skólalóð tilbúin á fyrri hluta árs 2012. Alls verður 1.100 milljónum króna varið til framkvæmda við Norðlingaskóla á árinu 2011.

Í upphaflegri áætlun var ráðgert að ljúka framkvæmdum árið 2013.

„Við höfum lagt áherslu á að umhverfi barna sé öruggt. Þarna verðum við að bæta í því sá tími sem við áætluðum til framkvæmda í upphafi er einfaldlega of langur,“ segir Jón Gnarr borgarstjóri.