Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fjölmenning í leikskólum

Nýir Íslendingar

Í leikskólum borgarinnar er leitast við að koma til móts við þarfir sérhvers barns. Leikskólabörn með annað móðurmál en íslensku hefur fjölgað töluvert á undanförnum árum og eru nú um átján af hundraði  barna í leikskólum borgarinnar eða um 960 börn. Í sumum leikskólum eru allt að helmingur barnanna af erlendum uppruna, s.s. í Fellaborg.  Leikskólastarfið þarf að endurspegla þennan menningarlega margbreytileika og taka mið af honum í  þjónustu við börn, foreldra og starfsfólk. Gefið hefur verið út upplýsingaefni á átta tungumálum fyrir foreldra, bæklingur um tví- og margtyngd börn, efni til að auðvelda samskipti milli leikskóla og foreldra og til er skemmtilegur vefur um fjölmenningarlegt leikskólastarf sem heitir Allir með. 

Orðalistar og annað hagnýtt

Skilaboð frá skóla