
Skólamötuneyti
Í leik- og grunnskólum er lögð áhersla á hreyfingu og hollan mat sem uppfyllir kröfur Lýðheilsustofnunar. Leitast er við að skapa gæðastundir í kringum máltíðir og góða matarmenningu með samveru og samkennd.
Í leikskólum borgarinnar fá börnin daglega morgunverð, hádegisverð og nónhressingu.
Leikskólaráðgjafi og verkefnisstjóri í lýðheilsu, Ingibjörg Margrét Gunnlaugsdóttir, er í samstarfi við þá sem veita ráðgjöf um starfsemi í mötuneytum leikskóla.
Leiðarvísir um veitingar fyrir afmælis- og kveðjuveislur í leikskólum
Mötuneyti í grunnskólum
Flestir nemendur í grunnskólum Reykjavíkur nýta sér skólamötuneytin þar sem boðið er upp á næringarríkan og hollan hádegisverð á degi hverjum.
Fagráð um skólamötuneyti er til ráðgjafar um mötuneyti leik- og grunnskóla, s.s. um forgangsröðun verkefna, áætlanagerð o.s.frv. Í ráðinu sitja fulltrúar frá fagsviði, yfirmenn skólamötuneyta leik- og grunnskóla, skólastjórnendur leik- og grunnskóla og fulltrúar foreldraráða leik- og grunnskóla.
Reglur um umsókn, innritun, gjaldtöku og innheimtu skólamáltíða voru samþykktar í menntaráði Reykjavíkur 9. febrúar 2009 og í borgarráði 6. mars 2009. Sjá reglurnar 
Heildarkostnaður við framleiðslu hverrar skólamáltíðar er um 340 kr. Þar af er hlutur foreldra 275 kr. eða um 80%. Foreldrar greiða einungis skólamáltíð fyrir 2 börn, önnur njóta 100% afsláttar.
Skráning fyrir mataráskrift í grunnskólum borgarinnar fer fram í gegnum Rafræna Reykjavík.
Upplýsingar um mötuneyti í grunnskólum Reykjavíkur
Gæðahandbók skólamötuneyta
Quality Manual for School Canteens
Áhugaverðar krækjur