Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Dagforeldrar

Dagforeldrar

Í borginni starfa um 200 dagforeldrar. Þeir eru sjálfstætt starfandi, en sviðið veitir þeim starfsleyfi, sinnir lögbundnu eftirliti með starfseminni og heldur einn námskeiðsdag á ári fyrir dagforeldra. Allir sem fá starfsleyfi til daggæslu í heimahúsum þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði, sbr. reglugerð nr. 907 frá 2005.

Daggjöld eru niðurgreidd vegna barna í daggæslu í heimahúsum. Niðurgreiðslur til einstæðra foreldra og námsmanna geta hafist við 6 mánaða aldur barns, en miðast við 9 mánaða aldur barna hjóna eða sambúðarfólks. 

Foreldrar sem nýta sér þjónustu dagforeldra gera niðurgreiðslusamning við Reykjavíkurborg, sem dagforeldri staðfestir og sendir til þjónustumiðstöðvar í sínu hverfi. Foreldar halda eftir afriti af samningnum. Er vistun lýkur er mikilvægt að segja henni upp á þar til gerðu eyðublaði sem dagforeldri hefur undir höndum. Dagforeldri þarf einnig að staðfesta að barnið sé hætt í vistun.
Sjá reglur um framlög Reykjavíkurborgar til dagforeldra sem taka gildi 1. október 2010.

Bæklingur um daggæslu í heimahúsum 

Listar yfir dagforeldra sem hafa starfsleyfi eftir hverfum eru á heimasíðum þjónustumiðstöðvanna. 
Dagforeldrar í Árbæ
Dagforeldrar í Grafarholti og Úlfarsárdal 
Dagforeldrar í Breiðholti
Dagforeldrar í Grafarvogi og á Kjalarnesi
Dagforeldrar í Laugardal og Háaleiti
Dagforeldrar í Miðborg
Dagforeldrar í Hlíðum
Dagforeldrar í Vestubæ

Viljir þú gerast dagforeldri þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Umsækjandi skal vera orðinn 20 ára
  • Umsækjandi skal hafa lokið grunnámskeiði sem haldið er í samvinnu við Námsflokka Hafnarfjarðar eða hafa aðra menntun á sviði uppeldis-, kennslu- og/eða félagsfræða
  • Skila skal læknisvottorði fyrir umsækjanda og fjölskyldu hans
  • Skila skal sakavottorði fyrir umsækjanda og fjölskyldumeðlimi eldri en 18 ára
  • Skylt er að virða lög um tóbaksvarnir og eru því reykingar óheimilar á meðan á dvöl barna stendur
  • Leikrými fyrir hvert barn innanhúss skal vera a.m.k. 3,5 fm
  • Útivistaraðstaða skal vera fullnægjandi og hættulaus
  • Skila þarf vottorði frá Eldvarnareftirliti

Veitt er leyfi til gæslu allt að fjögurra barna samtímis að meðtöldum þeim börnum sem fyrir eru á heimilinu yngri en 6 ára.

Eftir eins árs samfelldan starfstíma er heimilt að veita leyfi fyrir einu barni til viðbótar, enda hafi dagforeldri sýnt af sér hæfni til starfsins og veitt börnum góðan aðbúnað í hvívetna.
Að jafnaði skulu ekki vera fleiri en tvö börn undir eins árs aldri.

Sjá framlög til dagforeldra í Reykjavík frá 1. janúar 2012.

Sjá upplýsingar um húsnæði sem Reykjavikurborg býður dagforeldrum til leigu.

Nánari upplýsingar um dagforeldra og leyfisveitingar fást hjá þjónustumiðstöðvum borgarinnar.