
Þjónustutrygging
Þjónustutrygging er tímabundin greiðsla til foreldra þar til leikskólapláss býðst fyrir barn hjá leikskólum borgarinnar eða önnur dagvistun sem er niðurgreidd af Leikskólasviði, s.s. vistun hjá dagforeldri eða í sjálfstætt starfandi leikskóla.
Þjónustutrygging fellur niður þegar leikskólapláss eða önnur niðurgreidd þjónusta býðst fyrir barnið. Foreldrar geta þó valið að nýta sér þjónustutryggingu í stað leikskólapláss eða þjónustu dagforeldris þar til barnið verður 24 mánaða.
Einstæðum foreldrum stendur til boða þjónustutrygging þegar barn nær 6 mánaða aldri en foreldrum í hjúskap eða sambúð þegar barn nær 9 mánaða aldri.
Skv. 2. tölulið A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, sbr. 2. gr. laga nr. 17..., teljast styrkir sem foreldrar fá frá sveitarfélögum til að annast barn heima, frá lokum fæðingarorlofs fram til þess að barnið hefur leikskólavistun eða grunnskólanám, ekki til tekna hjá móttakanda. Þ.e.a.s. gengið er út frá því að foreldri sem vill annast barn sitt heima og fær styrk frá sveitarfélaginu, sé undanþeginn skattskyldu. Styrkurinn er engu að síður framtalsskyldur.
Gæti afi eða amma barnsins og foreldrar greiða þeim andvirði þjónustutryggingarinnar er sú greiðsla skattskyld.
ATHUGIÐ: Þjónustutrygging verður aflögð frá og með 1. apríl 2011.
Reglur um þjónustutryggingu
Ábending til þeirra sem sækja um þjónustutryggingu eða breyta umsókn um þjónustutryggingu
Umsókn um þjónustutryggingu