Markvisst er unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Í hverjum leikskóla er starfrækt foreldrafélag og foreldraráð. Samtök foreldrafélaga í leikskólum heitir Börnin okkar og eiga þau áheyrnarfulltrúa í skóla- og frístundaráði. Foreldrar eru ár hvert hafðir með í ráðum við mótun stefnu og starfsáætlunar fyrir leikskólastarfið og byggir fjárhagsáætlun á þeirri vinnu.
Samkvæmt lögum um leikskóla frá 12. júní 2008 skal vera foreldraráð við hvern leikskóla. Kjósa skal í ráðið og skal leikskólastjóri hafa frumkvæði að kosningu. Í foreldraráði sitja að lágmarki þrír foreldrar. Skal kosning fara fram í september ár hvert og er kosið til eins árs í senn.
Hlutverk foreldraáðs er að gefa umsagnir til leikskóla og leikskólanefndar. Fjallar það um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem snerta starfsemi leikskólans. Einnig fylgist það með framkvæmd skólanámskrár og annarra áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum. Ráðið hefur umsagnarrétt um allar meiri háttar breytingar á leikskólastarfi.
Tengiliður vegna foreldrasamstarfs er Kristín Sæmundsdóttir s. 411 7063.
Fjölskylda og leikskóli - Handbók um samstarf fyrir leikskólastarfsfólk. Velkomin til samstarfs um leikskólabarnið.Sjá flettibirtingu.Bæklingurinn Velkomin til samstarfs um leikskólabarnið á ýmsum tungumálum: Mirësevini në këtë bashkëpunim reciprok ndërmjet prindërve dhe kopështit të fëmijëve! - Albanska.Sjá flettibirtingu. Malipayong pakigduyog sa pag kindergarten sa imong anak! - Cebuano.Sjá flettibirtingu. Bienvenidido a perticipar en la guardería con tu hijo!o - Spænska.Sjá flettibirtingu. Zapraszamy ciebie i twojego przedszkolaka do wspótpracy! - Pólska.Sjá flettibirtingu. ยินดีต้อนรับเพื่อเข้าร่วมในกิจกรรมโรงเรียนอนุบาลเพื่อบุตรของท่าน! - Tælenska.Sjá flettibirtingu. Welcome to cooperation regarding your preschool child! - English.Sjá flettibirtingu. Заботимся Заботимся вместе о Вашем ребенке, посещающем детский сад! - Rússneska.Sjá flettibirtingu.
Skóla- og frístundasvið
Borgartún 12-14105 ReykjavíkSími 411 1111sfs@reykjavik.is