
Sérhæfðir leikskólar
Leikskólarnir Múlaborg og Sólborg eru sérhæfðir í vinnu með fötluðum börnum. Þeir sinna einnig mikilvægu ráðgjafarhlutverki við aðra leikskóla. Báðir leikskólarnir hafa sérhæft sig í að þróa leiðir að sameiginlegu námi fatlaðra og ófatlaðra barna þannig að þörfum allra sé mætt.
Múlaborg hefur sérhæft sig í að mæta þörfum barna með ýmsar fatlanir og þá helst með hreyfihömlun og fjölfötlun. Í skólanum er unnið markvisst að því að örva mál og tjáningu, s.s. með PCS myndum og tákni með tali.
Sólborg hefur sérhæft sig í að mæta þörfum barna með heyrnarskerðingu, heyrnarleysi og börnum sem hafa farið í kuðungsígræðslu. Hugmyndafræðin byggir á því að búa börnunum tvítyngt málumhverfi þar sem nám fer fram á íslensku og táknmáli, auk þess sem þau fá heyrnarþjálfun.
Báðir leikskólarnir eru í fararbroddi við innleiðingu einstaklingsnámskrár og teymisvinnu með sérfræðingum og foreldrum.