
Ofnæmi og óþol
Talið er að um það bil 5-8 % barna séu með ofnæmi eða óþol fyrir einni eða fleiri fæðutegundum. Mörg þeirra vaxa frá ofnæminu og því eru um það bil 2-3 % fullorðinna með ofnæmi eða óþol.
Mikilvægt er að starfsfólk í mötuneytum meðhöndli matvæli rétt og haldi þeim aðskildum svo börn með ofnæmi og óþol verði ekki fyrir óþægindum eða lendi í lífsháska vegna óæskilegs matar. Eins þarf starfsfólk að vita nákvæmlega hvaða efni eru í samsettum matvælum, s.s. kjötbollum, brauði, sósum, súpum o.s. frv. einmitt vegna barna sem eru með ofnæmi eða óþol. Sjá hér á síðunni leiðbeiningar um matreiðslu fyrir börn með ofnæmi og fæðuóþol og aðrar gagnlegar upplýsingar.