
Menntaráð
Á borgarstjórnarfundi 15. júní 2010 var samþykkt að menntaráð fari með verkefni leikskólaráðs til næstu áramóta. Á sama fundi var kosið í menntaráð:
Sjá meira um fulltrúa, varamenn og áheyrnarfulltrúa í menntaráði.
Sjá samþykkt fyrir menntaráð frá 2. júlí 2009. Ráðið fundar að jafnaði annan og fjórða miðvikudag hvers mánaðar, kl. 12.30. Fella má niður fundi í allt að tvo mánuði að sumarlagi. Ráðið getur haldið fundi opna almenningi.
Leikskólaráð/menntaráð mótar stefnu í menntamálum og öðrum málefnum barna á leikskólaaldri í Reykjavík og þjónustu við foreldra þeirra, m.a. um leikskóla, daggæslu, leik- og gæsluvelli. Jafnframt hefur ráðið eftirlit með að samþykktum og stefnumörkun borgarinnar í menntamálum barna á leikskólaaldri sé fylgt og fylgist með gæðum þess skólastarfs og annars starfs sem fram fer á verksviði þess. Þá fer ráðið með önnur þau verkefni sem borgarráð ákveður.
Leikskólaráð fer með verkefni leikskólanefndar skv. lögum um leikskóla nr. 78/1994 og reglugerð um starfsemi leikskóla nr. 225/1995. Þá fer ráðið með verkefni félagsmálanefndar skv. 34. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, að því er lýtur að daggæslu í heimahúsum og rekstri gæsluvalla.
Leikskólaráð hefur eftirlit með að framfylgt sé lögum um leikskóla og reglugerðum settum á grundvelli þeirra. Það gætir þess að leikskólar á vegum borgarinnar búi við fullnægjandi húsnæði til skólastarfs og að annar aðbúnaður sé fyrir hendi. Jafnframt gerir það tillögur til borgarráðs um byggingu nýrra leikskóla eða viðbygginga við eldri skóla og gerð leik- og gæsluvalla.
Leikskólaráð hefur eftirlit með framkvæmd daggæslu barna í Reykjavík samkvæmt ákvæðum laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og reglugerðar um daggæslu barna í heimahúsum, og er jafnframt stefnumótandi á því sviði.
Leikskólaráð veitir, án staðfestingar borgarráðs, leyfi til reksturs einkarekinna leikskóla og hefur eftirlit með starfi þeirra, sbr. 7. gr. laga um leikskóla nr. 78/1994 og ræður skólastjóra leikskóla, sbr. 12. gr. laga um leikskóla nr. 78/1994, með síðari breytingum, sjá nánar heimild í 2. mgr. 44. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og viðauka 1.6 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1200/2007.
Leikskólaráð er skipað sjö fulltrúum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann og skal hann vera borgarfulltrúi eða varaborgarfulltrúi. Ráðið kýs sér varaformann og skiptir að öðru leyti með sér verkum. Kjörtímabil ráðsins er hið sama og borgarstjórnar.
Framboðslista sem á fulltrúa í borgarstjórn er heimilt skv. 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, að tilnefna borgarfulltrúa eða varaborgarfulltrúa til að sitja fundi leikskólaráðs með málfrelsi og tillögurétt, eigi hann þar ekki fulltrúa.
Sjá fundargerðir menntaráðs