Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Viðbrögð við einelti

Í starfsáætlun fyrir árið 2010 er markmiðið að starf leikskóla borgarinnar einkennist af: gleði, umhyggju og virðingu.

Leiðarljós er að: í leikskólanum njóti börnin bernsku sinnar, læri og þroskist í leik og samveru.
Lögð er áhersla á velferð og framfarir allra barna enda búi starfsfólk leikskóla börnunum hollt og hvetjandi umhverfi og örugg náms- og leikskilyrði sem grundvallist á lýðræðislegum gildum. Börn í leikskóla öðlast leikni í lýðræðislegum vinnubrögðum, skoðanaskiptum og ákvarðanatöku.

Unnið er markvisst að því að byggja upp jákvæða sjálfsmynd, félagsfærni og leikni í samskiptum hjá börnunum og lögð er áhersla á að í leikskólanum ríki gagnkvæmt traust milli foreldra, starfsmanna og barna. Foreldraráð starfar við hvern leikskóla og foreldrar eru hvattir til virkrar þátttöku í uppeldi og menntun barna sinna í leikskólanum.

Hvað er einelti?

  • Einelti felur í sér að barn/einstaklingur er tekinn fyrir af einum eða hópi með síendurtekinni stríðni, látbragði, niðrandi ummælum, sögusögnum, andlegri kúgun, hótunum af ýmsu tagi, félagslegri höfnun eða markvissri útskúfun.
  • Ef barn er lagt í einelti líður ekki langur tími áður en því fer að líða illa, verður óttaslegið, öryggislaust, einmana og á varðbergi.
  • Stefnumótun í eineltismálum hefur að markmiði að tryggja öruggt leikskólaumhverfi þar sem börnum líður vel. Börnum líður vel þar sem samskiptin helgast af virðingu, samábyrgð, hlustun og umhyggju.
  • Einelti er ofbeldi sem getur haft varanleg áhrif.


Hvert geta foreldrar snúið sér leiki grunur á að barn þeirra verði fyrir einelti í leikskóla?
Foreldrar þurfa alltaf að taka alvarlega grun um að barn þeirra verði fyrir einelti eða ef upplýsingar berast frá leikskólanum um að barn þeirra sæti einelti. Ef grunur vaknar geta foreldrar snúið sér til leikskólastjóra í viðkomandi leikskóla eða til foreldraráðgjafa á leikskólaskrifstofu, Kristínar Sæmundsdóttur í síma 411-1111 eða með tölvupósti á netfangið: kristin.saemundsdottir@reykjavik.is.

Sjá Olweusaráætlun gegn einelti í skólum.

Sjá eineltis- og forvarnaráætlun leikskólans Jörfa.

Hægt er m.a. að kynna sér innleiðingu Olweusar áætlunarinnar í leikskólanum Eyrarskjóli. 

 




Skóli og frístund Fjölmenning í leikskóla List og menning í leikskólastarfi