Fundað í Brúnni um samfellu í skólastarfi
22.02.2010
Upplestur á frétt 
Næsti fundur í Brú- vettvangi um skólamál, verður miðvikudaginn 3. mars kl. 15:00-17:00. Yfirskrift fundarins er Samfella í skólastarfi, tækifæri og tálmar. Fundurinn verður haldinn í græna salnum í Verslunarskóla Íslands við Ofanleiti.
Á dagskrá fundarins eru þrjú erindi. Þrúður Hjelm, skólastjóri í Krikaskóla, mun fjalla um samfellt skólastarf leik- og grunnskóla í Mosfellsbæ. Gerður G. Óskarsdóttir, fyrrverandi fræðslustjóri, mun greina frá niðurstöðum rannsóknar sinnar á skólaskilum leik- og grunnskóla annars vegar og grunn- og framhaldsskóla hins vegar og Kristján Ásmundsson, settur skólameistari í FS, ætlar að fjalla um fljótandi skil grunn- og framhaldsskóla.
Sjá auglýsingu um næsta Brúar-fund.