Forsetahjónin í heimsókn í Norðlingaskóla
24.02.2010
Upplestur á frétt 
Hr. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og frú Dorrit Moussaieff heimsóttu Norðlingaskóla í dag í tilefni þess að skólinn fékk Íslensku menntaverðlaunin á liðnu ári. Heimsóknin hófst í útikennslustofunni í Björnslundi þar sem Norðlingar una löngum stundum.
Í Björnslundi buðu skólastjórnendur og nemendur forsetahjónunum upp á skógarkakó og flatkökur og sýndu þeim m.a. útileikhús og aðstöðu nemenda til að sofa úti. Þvínæst var farið upp í skóla sem er enn í bráðabirgðahúsnæði, en framkvæmdir standa nú yfir við nýtt skólahús. Gengið var um skólann og litið inn í ritunarsmiðju, leikhússmiðju og söngsmiðju
svo og í unglingadeildina þar sem nemendur voru í smiðju um Gunnlaugssögu Ormstungu.
Í lok heimsóknarinnar færðu nemendur í Norðlingaskóla forsetahjónunum krús með 300 heilræðum, eitt frá hverjum nemenda. Hr. Ólafur Ragnar sagðist sjaldan hafa fengið jafn skemmtilega og frumlega gjöf og yrði krúsinni stillt upp á Bessastöðum og fólki boðið að lesa heilræðin frá Norðlingum.
Norðlingaskóli fékk Íslensku menntaverðlaunin 2009 fyrir framsækni, nýsköpun og einkar heildstæða og skýra stefnumörkun. Starf skólans er grundvallað á því lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skuli búin námsskilyrði svo hann megi á eigin forsendum þroskast og dafna sem sjálfstæður, sterkur og ekki síst lífsglaður einstaklingur.
Skólastarfið er reist á grundvelli stefnu um einstaklingsmiðað nám, að komið sé til móts við þarfir allra nemenda og að þeim líði vel. Litið er á margbreytileika nemendahópsins sem kost frekar en hindrun. Stefnan var mótuð í upphafi á heildstæðan og framsækinn máta þar sem Norðlingaholtið og nánasta umhverfi þess er samofið skólastarfinu og áhersla lögð á virk tengsl við foreldra og forráðamenn nemenda.
Í Norðlingaskóla er árgöngum kennt saman með það að markmiði að auka félagsfærni nemenda og auðvelda að hver nemandi fari á sínum hraða á grunnskólagöngu sinni. Mikil áhersla er lögð á list- og verkgreinar og samþættingu þeirra við aðrar námsgreinar.
.