Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Kennt með kynjagleraugum

02.03.2010

Upplestur á frétt 

Jafnrétti kynja frá landnámi til vorra daga er yfirskrift samstarfsverkefnis nokkurra skóla sem kynnt verður í grunnskólum Reykjavíkur á næstu vikum. Verkefnið hlaut hvatningarverðlaun menntaráðs 2009.

Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkur stendur að kynningu að þessu verkefni í samstarfi við Vogaskóla og Menntasvið, en tveir kennarar í Vogaskóla, þær Unnur Gunnarsdóttir og Sigurbjörg Hallgrímsdóttir munu fara út í skólana og kynna hugmyndir um hvernig flétta megi kynjaáherslum inn í kennslu á öllum skólastigum.

Á tímabilinu 8. mars-20. apríl ætla þær Unnur og Sigurbjörg að standa fyrir kynningarfundum fyrir kennara í Grandaskóla, Hagaskóla, Vesturbæjarskóla, Melaskóla, Landakotsskóla og Tjarnarskóla.

Frá 23. apríl og fram til loka skólaárs verður kynning í Austurbæjarskóla, Hlíðaskóla, Háteigsskóla, Brúarskóla, Öskjuhlíðarskóla, Ísaksskóla og Suðurhlíðaskóla. Kynning í öðrum skólum fer fram á haustmisseri.

Hver kynningarfundur mun taka eina til tvær klukkustundir. Senda má óskir um kynningu á unnur1@vogaskoli.is og sigurbjorgh@vogaskoli.is