Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

8,8% nemenda í þriðja bekk þurfa stuðning í stærðfræði

09.03.2010

Upplestur á frétt 

Skimunarpróf í stærðfræði var lagt fyrir 3. bekkinga í 30 grunnskólum í nóvember 2009. Markmiðið er að finna þá nemendur sem eru líklegir til að lenda í vanda í stærðfræðinámi og bregðast við með einstaklingsáætlun og/eða sérkennslu. Meginniðurstaða er sú að 8,8% nemenda teljast þurfa sérstakan stuðning í stærðfræði.

Af þeim hópi sem tók þátt í prófinu náðu 69% nemenda settu viðmiði í þrepi I og teljast því vera ólíklegir til að þurfa á sérstakri aðstoð að halda í stærðfræði. Um 16% nemenda náðu settu viðmiði í þrepi II og eru ekki í mikilli áhættu hvað varðar námsörðugleika í stærðfræði. Um 15% nemenda fóru í gegnum allt prófið og af þeim teljast 8,8% þurfa sérkennslu og/eða stuðning í stærðfræði.

Í nóvember 2008 töldust um 8,3% nemenda sem tóku prófið þurfa sérstakan stuðning í stærðfræði á móti 8,8% nú og það ár náðu 66% nemenda settu viðmiði í þrepi 1 en nú 69%.

Stærðfræðiskimunin var kynnt fyrir menntaráði 10. mars. Í bókun ráðsins segir m.a.;
- Ráðið telur þær upplýsingar sem fram koma í niðurstöðum Talnalykils afar mikilvægar til að bæta enn frekar stærðfræðinám í grunnskólum Reykjavíkur. Þátttaka í stærðfræðiskimuninni Talnalykli 2009 hefur aldrei verið meiri en nú. Þátttaka nemenda í 3. bekk í grunnskólum Reykjavíkur var 82%. Ánægjulegt er að sjá að hlutfall nemenda sem einungis ljúka prófhluta I, og teljast því ólíklegir til að þurfa sérstaða aðstoð í stærðfræði, hefur hækkað milli ára, úr 66% í 69%.

Menntaráð hvetur í bókuninni einnig mennta- og menningarmálaráðuneytið til að hefja sem allra fyrst aftur útreikninga og útgáfu á framfarastuðlum einstakra skóla:
- Til að ná góðum árangri í skólastarfi eru traustir mælikvarðar grundvallaratriði. Fram til ársins 2006 birti Námsmatsstofnun s.k. framfarastuðul skóla (framfarastuðull II) á heimasíðu sinni sem unninn var út frá niðurstöðum samræmdra könnunarprófa.
Mat á framför einstakra nemenda eða heilla árganga eru með þeim gagnlegustu upplýsingum sem hægt er að fá úr skólastarfinu og nauðsynlegar kennurum sem mat á eigin starfi, skólum sem hluti af skólaþróun og sjálfsmati og fræðsluyfirvöldum sem grunnur að ytra mati og stuðningi við skóla. Í ljósi þess hve mikilvægar upplýsingar um skólastarf er um að ræða, hvetur menntaráð Reykjavíkur mennta- og menningarmálaráðuneytið til að hefja aftur útreikninga og útgáfu á framfarastuðlum einstakara skóla sem allra fyrst.