Stefnt að auknu jafnræði í tónlistarnámi
25.08.2010
Upplestur á frétt 
Menntaráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum 25. ágúst að skipa starfshóp til að marka stefnu um tónlistarfræðslu. Hópurinn verður í samstarfi við skólastjóra, tónlistarkennara og aðra sérfræðinga og mun hafa að leiðarljósi að efla fagvitund, kostnaðarvitund og jafnræði þegar kemur að tónlistarnámi og öllu skipulagi í starfsemi tónlistarskóla í Reykjavík.
Menntaráð samþykkti jafnframt að óska eftir því að borgarráð veitti heimild fyrir 102 milljóna króna viðbótarfjárveitingu á komandi skólaári til tónlistarskólanna vegna náms nemenda sem eru 16 ára og eldri. Í þeirri tillögu kemur fram að vilji er til þess að skoða við hvaða aldur á að miða þegar kemur að aðgengi nemenda að tónlistarnámi á vegum Reykjavíkurborgar.
Í greinargerð með tillögu Besta flokksins og Samfylkingar í menntaráði segir að starfshópurinn eigi m.a. að skoði gæðaviðmið Reykjavíkurborgar þegar kemur að tónlistarnámi, hvernig auka megi samstarf leik- og grunnskóla við tónlistarskólana, hvernig tónlistarskólar geti aðlagast nýjum aðstæðum í samfélaginu og hvernig tryggja megi börnum vandað tónlistarnám, óháð efnahag.
Í málefnasamningi Besta flokksins og Samfylkingarinnar er kveðið á um að skólar geti áunnið sér Menningarfána leggi þeir rækt við menningarstarf og listfræðslu. Skólar og frístundaheimili geta þannig markað sér menningarstefnu og stofnað til samstarfs við menningarstofnanir og listafólk, t.d. með því að taka listamenn í fóstur. Eins er kveðið á um að Vegvísir til listfræðslu (UNESCO) verði grunnur að menningarstefnu skólanna í borginni.