Afstaða foreldra skiptir sköpum fyrir námsárangur
08.09.2010
Upplestur á frétt 
Leikskólakennari ber ábyrgð á því að samband milli heimilis og leikskólans sé gott og stöðugt og að því sé viðhaldið. Mikilvægt er að hvetja foreldra til að taka þátt í starfi leikskólans. Kannski vilja þeir koma inn í leikskólann til þess að spjalla við börnin, segja þeim sögur eða syngja fyrir þau. Einnig má hvetja þá til að skrifa eða búa til tákn á ólíku ritmáli. Sumir foreldrar vildu kannski vera minna áberandi og taka þátt með því að búa til merki, kveðjur eða annað á móðurmáli sínu sem síðar væri hægt að hengja upp og ræða um. Ekki er hægt að gera ráð fyrir því að allir foreldrar séu læsir og skrifandi á móðurmáli sínu. Þegar unnið er með menningu og móðurmál barna af erlendum uppruna skal það ávallt gert í fullu samstarfi við foreldra og hafa það að markmiði að kynnast barninu og foreldrum þess betur.
Hér má finna fjölbreyttar leiðir til þess að auðvelda samskipti á milli leikskóla og foreldra sem ekki tala íslensku eða annað það tungumál sem nýtist í þeim samskiptum.
Fjölskylda og leikskóli - Handbók um samstarf.
Velkomin til samstarfs um leikskólabarnið - bæklingur fyrir foreldra
Leikskólasvið hefur gefið út handbók um samstarf við fjölskyldur leikskólabarna. handbókinni er ætlað að vera leiðarvísir fyrir leiskkólakenanra og annað leikskólastarfsfólk um samstarf við foreldra. Hún getur verið stuðningur við gerð áætlunar þar sem horft er á fjölskyldu og leikskóla sem samstarfsaðila og þau tækifæri sem felast í fjölbreytyilegum foreldrahópi. Einnig er henni ætlað að hvetja leikskólakennara til að hafa frumkvæði að og leita fjölbreyttra leiða í samstarfið við alla foreldra. Handbókina má prenta út hér.
Sjá meira um foreldrasamstarf og fjölmenningarlegt leikskólastarf í skýrslunni Lækjaborg fjölmenningarlegur leikskóli.
Lykilpersóna
Túlkur
Fyrsta viðtal
Heimaviðtal
Aðlögun
Fjölskylda og leikskóli - Handbók um samstarf.
Velkomin til samstarfs um barnið þitt - bæklingar fyrir foreldra á átta tungumálum
Leikskólasvið hefur gefið út handbók um samstarf við fjölskyldur leikskólabarna. handbókinni er ætlað að vera leiðarvísir fyrir leiskkólakenanra og annað leikskólastarfsfólk um samstarf við foreldra. Hún getur verið stuðningur við gerð áætlunar þar sem horft er á fjölskyldu og leikskóla sem samstarfsaðila og þau tækifæri sem felast í fjölbreytyilegum foreldrahópi. Einnig er henni ætlað að hvetja leikskólakennara til að hafa frumkvæði að og leita fjölbreyttra leiða í samstarfið við alla foreldra. Handbókina má prenta út hér.
Sjá meira um foreldrasamstarf og fjölmenningarlegt leikskólastarf í skýrslunni Lækjaborg fjölmenningarlegur leikskóli.
Tillaga um aukið og markvisst samstarf skóla og foreldra á leikskóla- og grunnskólastigi var samþykkt einróma á fundi menntaráðs Reykjavíkur miðvikudaginn 8. september. Starshópur, skipaður fulltrúum foreldra, kennara, skólastjórnenda og sérfræðingum frá Leikskólasviði og Menntasviði Reykjavíkurborgar, mun vinna að stefnumótun fyrir foreldrasamstarf.
Í greinargerð með tillögu Samfylkingar og Besta flokksins segir m.a.:
- Rannsóknir hafa sýnt að börn þeirra foreldra sem eiga hlutdeild í leikskólastarfinu eru líklegri til að sýna góða hegðun og framkomu. Jafnframt sýna rannsóknir að áhrif foreldra á námsárangur barna er mun meiri en almennt hefur verið talið, þannig eru áhrif þeirra á námsárangur 7-9 ára barna sex sinnum meiri en áhrif skólans.
- Stuðningur foreldra felst fyrst og fremst í þeim gildum og viðhorfum sem ríkja á heimili barnsins til menntunar og skólastarfs. Það er umræðan við eldhúsborðið, væntingar foreldranna, hvatning og örvun sem vekur áhuga barnsins og er undirstaða námsárangurs og farsæls skólastarfs. Af þessum ástæðum þarf grunnskólinn að leita allra leið til að gefa foreldrum aukna og markvissa hlutdeild í skólastarfinu og líta á þá sem mikilvæga samstarfsaðila á jafnréttisgrundvelli.
Oddný Sturludóttir formaður menntaráðs segir að vitundarvakning hafi orðið um mikilvægi foreldrasamstarfs;
„Enginn einn þáttur hefur jafn afgerandi áhrif á velgengni og vellíðan barna okkar í skólanum eins og jákvæð viðhorf foreldra og hvatning. Það er sama hversu góður skólinn er, hann kemur aldrei í stað góðra foreldra sem sýna í orði og verki að þeir virði og meti nám og skólastarf. Samstarf foreldra og skóla snýst ekki bara um setu í skólaráði eða fjölda bingókvölda, það er umræðan við eldhúsborðið sem skiptir öllu máli. Saman gerum við góða skóla betri.“
Sjá fundargerð menntaráðs frá 8. september 2010. 