Rimaskólastúlkur sigruðu á Íslandsmóti grunnskólanna í skák
09.02.2011
Upplestur á frétt 
Mikið var um að vera hjá efnilegustu skákstúlkum landsins um liðna helgi, en þá var haldið Íslandsmót grunnskóla í stúlknaflokki og Íslandsmót stúlkna í einstaklingskeppni. Stúlkur úr Rimaskóla höfðu sigur í öllum keppnisflokkum og fóru heim með þrjá Íslandsmeistaratitla. Alls mættu 10 skólaskáksveitir til leiks á Íslandsmót grunnskólasveita og 25 stúlkur á Íslandsmót stúlkna í einstaklingsflokki.
Rimaskóli hefur jafnan verið sigursæll á Íslandsmóti grunnskólasveita í stúlknaflokki því skákdrottningar skólans urðu Íslandsmeistarar sex ár í röð 2003 - 2008. Nú er skólinn kominn með nýja afrekssveit sem vakið hefur mikla athygli. Hún er skipuð stúlkum sem eru iðnar við skákæfingar í skólanum og heima hjá sér og taka þátt í öllum skákmótum sem þeim stendur til boða.
Íslandsmeistarar Rimaskóla eru þær systur Hrund og Heiðrún Anna Hauksdætur en Hrund varð einnig Íslandsmeistari stúlkna í einstaklingskeppni í eldri flokk. Nansý Davíðsdóttir er 9 ára gömul og nýkrýndur Íslandsmeistari stúlkna í flokki 13 ára og yngri. Ásdís Birna Þórarinsdóttir og Tinna Sif Aðalsteinsdóttir voru í sigursveit stúlknanna. Þjálfari er Sigríður Björg Helgadóttir sem fyrir nokkrum árum varð Íslandsmeistari og Norðurlandameistari með skáksveit Rimaskóla.
Skákáhuginn í Rimaskóla á sér engin takmörk og státar skólinn af stórefnilegu skákfólki á öllum aldri. Áhersla hefur verið lögð á jafna þátttöku stúlkna og drengja í skáklistinni og hefur í samstarfi við Skákakademíu Reykjavíkur hefur nemendum í 1. - 6. bekk Rimaskóla verið boðið upp á skákkennslu í vetur allt frá þremur og upp í átján kennslustundir.