Styrkir til AHDH, foreldrasamstarfs og nýsköpunarkeppni
09.02.2011
Upplestur á frétt 
Nær þrjátíu umsóknir bárust um almenna styrki menntaráðs skólaárið 2011-2012. Á fundi sínum 9. febrúar samþykkti ráðið að úthluta styrkjum til sex verkefna fyrir alls 1,5 milljón króna. Hæsti styrkurinn rennur til AHDH samtakanna, eða 400.00 kr., sem verja á til námskeiðahalds fyrir kennara. Tveir styrkir, sem námu 300.000 kr. hvor, var úthlutað til nýsköpunarkeppni grunnskólanema og til foreldrasamtakanna SAMFOK, sem ætla að standa fyrir fundarherferð til að vekja foreldra til umhugsunar um sameiginlega ábyrgð þeirra á velferð barna í skóla og nánasta umhverfi.
Styrkir voru einnig veittir til Endurmenntunar HÍ vegna vísindanámskeiða fyrir 8-14 ára börn, Landssamtaka slökkviliðs og sjúkraflutningamanna vegna eldvarnarátaks meðal grunnskólabarna og til Íslenska stærðfræðifélagsins sem vinnur að því að koma upp hugtakasafni í stærðfræði á vefnum.