Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Skólahald fellur niður í Klébergsskóla á Kjalarnesi í dag vegna óveðurs, foreldrar í öðrum hverfum eru hvattir til að meta aðstæður áður en þeir senda börn sín af stað í skólann.

10.02.2011

Upplestur á frétt 

Tilkynning frá fræðslustjóranum í Reykjavík; skólahald fellur niður í Klébergsskóla í dag vegna óveðurs og foreldrum ber að halda börnum sínum heima. Í öðrum hverfum borgarinnar er mikilvægt að foreldrar sjálfir fylgist með veðri og veðurspám og hagi sér í samræmi við aðstæður hverju sinni, enda getur veður þróast með ófyrirséðum hætti og aðstæður verið mjög mismunandi eftir svæðum.

Röskun getur orðið á skólastarfi vegna óveðurs ef starfsfólk á erfitt með að komast í skóla. Við þessar aðstæður eru skólar engu að síður opnaðir og taka á móti nemendum og þeir geta dvalið þar á meðan skipulagt skólahald á að fara fram. Mjög mikilvægt er að foreldrar fylgi börnum til skóla og yfirgefi þau alls ekki fyrr en þau eru í öruggum höndum starfsfólks.

Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla þá skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlileg forföll. Hið sama gildir ef foreldrar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa.

Foreldrum er bent á frekari upplýsingar um viðbragðsáætlun vegna röskunar á skólastarfi á heimasíðu Menntasviðs.